Hvaða kex ert þú?
Taktu þetta próf til að komast að því sem fólk hefur öldum saman viljað fá svarið við, hvaða kex ert þú?
Hvar væri líklegast að finna þig á Laugardagskvöldi?
Hvert eftirfarandi kemst næst því að vera uppáhaldsmaturinn þinn?
Sem hvernig einstakling myndu vinir þínir lýsa þér?
Hvað pirrar þig mest?
Hvernig lýsir húmorinn þinn sér best?
Hvað skiptir þig mestu máli í lífinu?
Hver er þinn helsti galli?
Ef þú þyrftir að endurfæðast sem eitthvað dýr, hvaða dýr væri það?
Hvað tekur þú ósjálfrátt að þér?
Ritz kex
Þú ert Ritz kex!
Hreint úr sagt ómissandi í gott partý og flestir eru hrifnir af þér. Þú hefur almennt gaman af lífinu og nýtur þess að vera í kringum fólk. Smá töffari með góða nærveru sem dregur aðra með sér og gerir aðstæður skemmtilegri án mikillar fyrirhafnar. Þú ert sá einstaklingur sem kemur hlutunum af stað og heldur þeim gangandi og gerir hversdagslega hluti ógleymanlega og sérstaka.
Þú parast best með rifsberjasultu og camenbert osti.
Homeblest kex
Þú ert Homeblest kex!
Rétt eins og Homeblest er um að ræða karakter sem er góður báðum megin og líður bæði vel heima hjá sér í rólegheitum og á stöðum þar sem er líf í kring. Þú ert manneskja sem tekur hlutunum létt og kannt að njóta þess sem er í gangi án þess að flýta þér eða gera of mikið úr hlutunum. Þú ert forvitinn einstaklingur að eðlisfari og hefur gaman að því að skoða sem flestar hliðar áður en þú tekur endanlega ákvörðun, sem leiðir oftast til góðra ákvarðanna.
Þú parast best með mjólkurkenndum kaffidrykk, t.d. latte.
Oreo kex
Þú ert Oreo kex!
Þú ert vinsæll einstaklingur og góður vinur sem treysta má á. Þú stendur ávalt með þínu fólki og ert alltaf til staðar þegar á þarf að halda. Traust og einlæg nærvera þín gerir það að verkum að fólk leitar sjálfkrafa til þín ráða ef eitthvað er að og eru þessi mikilvægu tengsl eitthvað sem þér þykir mjög vænt um. Almennt ertu mjög líflegur einstaklingur sem átt auðvelt með að láta öðrum líða vel, sem lætur þér líða vel sömuleiðis.
Þú parast best með ísköldu mjólkurglasi.
Matarkex
Þú ert Matarkex!
Sumir vilja meina að um sé að ræða gamaldags týpu, en þau sem þekkja þig vita að þú ert einfaldlega klassík, sem er ekki algengt í dag. Mjög stöðugur og yfirvegaður einstaklingur sem er með ráð við flestu og lætur ekki auðveldlega rugla sig. Þú hefur sterka réttlætiskennd og stendur með því sem skiptir máli, ert fæddur leiðtogi og þegar þú talar, þá hlustar fólk!
Þú parast best með strangheiðarlegum kaffibolla.
Kremkex
Þú ert Kremkex!
Þú munaðurinn uppmálaður og oftar en ekki best klæddi einstaklingurinn í flestum rýmum, enda í sparifötunum. Einstaklingur með sterkan karakter sem er ekki hræddur við að láta skoðanir sínar í ljós þó ekki öll séu sammála. Hefur gott auga fyrir því sem er vel gert og vill gera hlutina aðeins betur en aðrir og því mjög metnaðarfullur einstaklingur. Þú skilur eftir þig áhrif og stendur upp úr á einstakan hátt sem fólk í kringum þig dáist að.
Þú parast best með náttúrunni, t.d. í útilegu eða fjallgöngu.